Ísland, litla Ísland...

Einn af Þjóðverjunum mínum þurfti að fara til Patreksfjarðar í morgun. Tilgangur ferðarinnar var að fara til læknis, hann hafði fengið bráðaofnæmi, líklegast út af flísalími sem hann var að vesenast með í Þýzkalandi stuttu áður en hann kom til landsins. Ég ók honum því á Patró. Þegar við komum á heilsugæzluna kemur læknir að tala við hann og var það þá ekki bara Tóti MR-kórstrákur. Já, svona er heimurinn lítill!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband