Jæja, þá geri ég enn og aftur tilraun til að halda úti bloggi. Ég spái að það muni deyja Drottni sínum áður en langt um líður. Ég hef þó legið undir talsverður þrýstingi um að halda úti bloggi svona svo fólk geti fræðst um hvað á daga mína drífur hér fyrir vestan. Ég hef reynt að útskýra að það sé harla fátt og ekki er nú áhugavert að lesa um hversdagslegan raunveruleika minn. Við skulum þó sjá hvað verður úr þessu.
Annars er ég hálfónýtur í dag. Í gærkvöldi kom Þjóðverjahópur klukkan 01.00. Ég tók á móti þeim og sýndi þeim húsin sín. Við mæltum okkur svo mót kl. 08.00 um morguninn til að skrifa undir samninga og fara og skoða bátana. Annar hópur átti svo að koma eitthvað rétt fyrir átta svo að þetta hentaði allt mjög vel. En nei! Hópurinn sem kom með kvöldvélinni frá München og átti að vera í Tálknafirði um sjö leytið kom ekki klukkan sjö, heldur klukkan 5! Ég var ræstur af rútubílstjóranum kl. 04.30, þar sem hann tilkynnti mér að hann yrði hjá mér eftir hálftíma. Ég var vægast sagt illa sofinn. Ég mæti svo uppeftir og ætlaði mér heldur betur að drífa þetta af, sýna nýjum hóp húsið sitt og láta þá vita að bátakennslan yrði sama morgun kl. 08. Ég og dreif þetta af og kom mér aftur heim í rúmið. Ég var rétt sofnaður þegar síminn hringdi! Það var rútubílstjórinn sem var að fara með hóp til Súðavíkur! Hann hringdi í mig frá Súðavík til að spyrja mig hvort það væri nokkuð möguleiki að myndavél hefði slæðst með til Tálknafjarðar sem átti að fara til Súðavíkur. Ég átta mig enn ekki alveg á því hvernig það ætti hugsanlega að hafa gerzt en ég tjáði honum að því sem ég bezt vissi hefði engin auka myndavél komið hingað. Hann lét það gott heita. Þetta hefur verið um 05.30. Klukkan 06.00 hringir síminn aftur. Nú Þjóðverji í Súðavík. Hann saknaði myndavélarinnar sinnar og ætlaði bara að ganga alveg úr skugga um að ég vissi ekkert um hana. Hálfsofandi, úrillur og bara almennt í vondu skapi svaraði ég honum að ég vissi ekkert um umrædda myndavél og bað hann um að ræða við tengilið sinn í Súðavík. Hann gafst þó ekki upp og fór fram á (klukkan 06 morgun!) að ég myndi hringja fyrir hann til Keflavíkur til að athuga hvort myndavélin væri nokkuð þar! Ég hélt nú ekki og sagðist telja svefn minn mikilvægari en svo að ég fórnaði honum til að útrétta um hánótt fyrir fólk sem væri ekki einu sinni í minni umsjón. Ég fór svo aftur að sofa til að vakna örskammri stund síðar til að fara og hitta mitt fólk. Þetta hefur orsakað almenna geðvonzku í dag.
Tenglar
Tenglar
Tenglasafn Páls Heimissonar.
- Sara flugmaður Flugmaður, laganemi, flug- og skíðakennari. Ein með öllu!
- Parið í Prinsatúni ungfrú netpróf.is og maki
- Georgous Verðandi mikilmenni
- Sigrún vodkakona Einn tvöfaldur áður en hún fer að sofa!
- Alma Sögur af wannabe Spanjóla
- Sunna Sweet Sykursæt og hressandi
- Sunnus Alltaf stuð á Sunnu
- Huldulíus Huldus ólétta
- Arndís Dúnja Þórarinsdóttir Eitt skemmtilegasta bloggið sem ég les
- Jónas Jónas verðandi mannfræðingur skrifar um líf sveitastráksins í borginni
- Freyja Finnsdóttir Hér má lesa um kennslukonuna Freyju og hvað á daga hennar drífur
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 400
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Mér finnst ekki fallegt að það sé áætlað að bloggið deyi, engin von um að það lifi.
Alma (IP-tala skráð) 12.7.2006 kl. 19:41
Ég held að þetta herði bara bloggið.
Valla (IP-tala skráð) 13.7.2006 kl. 10:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.