Veikur

Ég er búinn að liggja veikur heima í tvo daga með ælupest! Ekki skemmtilegt, auk þess sem ég hef algjörlega ekkert að gera. Tók upp á því í morgun að fara að rannsaka eBay. Endaði svo þannig að nú er ég búinn að bjóða í uppþvottavél:D Alveg heilar 25 evrur! Um er að ræða notaða borðuppþvottavél sem myndi alveg bjarga lífi mínu. Djöfull vona ég að ég fái hana og á þessu verði, 7 klukkutímar eftir af uppboðinu svo cross your fingers!

Hvað annað er ég búinn að aðhafast, alveg nákvæmlega ekki neitt. Þar sem ég er nú allur að hressast að þá ætla ég nú að reyna að gera eitthvað af viti í kvöld. Kannski bara læra aðeins. Í hið minnsta ætla ég í vinnuna á morgun. Það versta við þessi veikindi er að ég missi af óperunni í kvöld, búhúúú! Ég var búinn að skipuleggja óperuferð með hinum praktiköntunum á la Bohème. Það verður víst ekkert úr þeirri ferð hjá mér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Æi litli monsinn minn....veikur bara....vildi að ég gæti hugsað um þig...sett blautan klút á ennið og gefið þér kjúklingasúpu  

ÉG vona þín vegna að þú hafir fengið borðuppþvottavélina :) kisses & misses

SunnaSweet (IP-tala skráð) 24.2.2007 kl. 11:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband